Opnun tilboða
Strandavegur (643), brú á Bjarnarfjarðará
Tilboð opnuð 12. september 2017. Smíði nýrrar brúar á Bjarnarfjarðará á Strandavegi í Strandasýslu.
Brúin er 140 m vestan núverandi brúar á Bjarnarfjarðará. Brúin verður 50 m löng steypt eftirspennt bitabrú í tveimur höfum 25 m löngum. Hún verður með 8,0 m breiðri akbraut og 0,5 m breiðum bríkum. Heildarbreidd brúarinnar er 9,0 m.
Helstu magntölur eru:
- Rofvörn 500 m2
- Gröftur 925 m3
- Fylling við steypt mannvirki 3.500 m3
- Skurður niðurrekstrarstaura 66 stk.
- Mótafletir 1.572 m2
- Steypustyrktarjárn 53.370 kg
- Spennt járnalögn 9.986 kg
- Steypa 604 m3
- Vegrið á brú 102 m
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. júlí 2018.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Vestfirskir verktakar ehf., Ísafirði | 179.599.100 | 122,6 | 0 |
Áætlaður verktakakostnaður | 146.507.000 | 100,0 | -33.092 |